Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Mímir ungmennahús
  Kveldúlfsgötu 2b
  Sími: 437 1281
  Fax: 433 7101
  Netf.: mimir@simnet.is
Íþrótta- og   æskulýðsfulltrúi
  Indriði Jósafatsson
  indridi@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Á ekki að mæta á söngkeppni MB og Mímis.
2006 Nuf fundur í Finnlandi
25. september 2009 12:41

Opnunarhátíð þriðjudag 29. sept kl. 20.00

25. september 2009

Mímir ungmennahús opnar í MB

Síðustu tvær vikur hafa ungmenni í Mími ásamt ungmennum í Nemendafélagi MB unnið sameiginlega að flutningi ungmennahússins frá Kveldúlfsgötu 2b yfir götuna í frábæra aðstöðu sem er á neðri hæð menntaskólans.

Verður þetta vonandi framtíðar ungmennahús sveitarfélagsins ásamt því að þar fer fram starfsemi nemendafélags menntaskólans.

Undirbúningur hefur gengið vel og samstarf stjórna með miklum ágætum. Einnig hefur ungmennaráð sveitarfélagsins komið að hugmyndavinnu. Áætlað er að á skólatíma hafi nemendur menntaskólans aðstöðuna en á kvöldin þá verði þetta ungmennahús fyrir öll ungmenni í sveitarfélaginu á aldrinum 16 - 25 ára og þá sjái húsráð ungmennahúss um starfið sem fram fer.

 

Opnunarhátíð verður haldin í nýja ungmennahúsinu þriðjudaginn 29. sept. n.k. kl. 20.00 og verður þá nýja aðstaðan vígð með viðhöfn og eru allir hjartanlega velkomnir.  Flutt verða ávörp í tilefni dagsins og opnuð ljósmyndasýning Rakelar Ernu Skarphéðinsdóttur á listavegg ungmennahússins.  

Öll ungmenni velkomin ásamt foreldrum og öðrum þeim sem vilja koma og gleðjast með ungmennum okkar að þessu tilefni. Gríðarlega margir möguleikar til félagsstarfs ungmenna eru þarna að opnast ekki síst vegna samstarfs og tengingar við menningarsalinn uppi vegna stærri uppákoma.

 

Ungmenni í Borgarbyggð til hamingju með nýju aðstöðuna, nú er það ykkar að sjá til þess að innra starfið blómstri og verði enn öflugra en áður.

ij.    

 

 

 

Þriðjudagskvöld frá kl. 20.oo - 23.oo

 

Miðvikudagskvöld frá kl. 20.oo - 23.oo

 

Fimmtudagskvöld frá kl. 20.00 - 23.00

 

Allir á aldrinum 16 - 25 ára eru velkomnir í heimsókn !