
Dagvistunarmál rædd í ungmennahúsi.
Mömmumorgnar í Mími ungmennahúsi ganga vel og er ágæt mæting í starfið sem er á miðvikudagsmorgnum frá kl. 10.30 – 12.00. Allar mæður ungbarna í sveitarfélaginu eru velkomnar.
Það var í haust sem hugmynd kviknaði að þessum morgnum í ungmennahúsinu og eiga þeir vel við í húsinu þar sem margar af ungu mæðrunum hafa sótt starf þess undanfarin ár.
Mæðurnar hafa sjálfar skipulagt starfið í vetur og séð um að fá fyrirlesara, í samvinnu við ungbarnaeftirlit Heilsugæslunnar, um ýmis málefni sem þeim eru hugleikin og vilja kynna sér eins og ungbarnanudd, brjóstagjöf o.fl.
Nýlega var t.d. fjallað um dagvistunarmál og stöðu þeirra þar sem sveitarstjórnarfulltrúar og forstöðumenn dagvistunarmála hjá sveitarfélaginu komu og ræddu málin varðandi dagvistun ungbarna. Þarna var upplýsingum miðlað um hvað betur má fara í málefnum ungra foreldra á jákvæðum fundi sem um 30 manns sóttu.
Það er mikilvægt að skapa ungu fólki aðstöðu eins og í ungmennahúsinu Mími til að hittast og ræða málin, koma málum á framfæri og mynda samheldni íbúa. Að ógleymdu því hversu skemmtilegt er að fara yfir sameiginleg áhugamál í uppeldinu er ekki verra að þarna fer fram skipulögð fræðsla og fundir um hin ýmsu mál sem snerta forvarnir og uppeldi.
Til hamingju með starfið ykkar ungmæður í Mími.
ij
Myndin er að hluta fundarmanna. ( ij )