Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Mímir ungmennahús
  Kveldúlfsgötu 2b
  Sími: 437 1281
  Fax: 433 7101
  Netf.: mimir@simnet.is
Íþrótta- og   æskulýðsfulltrúi
  Indriði Jósafatsson
  indridi@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
Á ekki að mæta á söngkeppni MB og Mímis.
2006 Nuf fundur í Finnlandi
16. júní 2010 11:08

Mímir ungmennahús 10 ára

Í dag 16. júní er Mímir ungmennahús 10 ára en ungmennahúsið hóf starfsemi í gömlu kartöflugeymslunni við Kveldúlfsgötu þann dag fyrir 10 árum.  Það voru kraftmikil ungmenni sem tóku virkan þátt í að undirbúa aðstöðuna og starfsemina á þeim árum en aðstaða fyrir aldurinn 16 – 25 ára ungmenni var þá ekki fyrir hendi í sveitarfélaginu.   Segja má að starfsemin hafi gengið vel þessu ár og frekar bætt við sig þessi ár sem liðin eru en ungmennahúsið flutti starfsemi sína í nýtt húsnæði í Menntaskóla Borgarfjarðar í september á síðasta ári og fer starfsemin nú þar fram í samstarfi við stjórn nemendafélags menntaskólans. Í sparnaðarskyni hefur ekki verið starfsmaður í ungmennahúsinu s.l. tvö ár en ungmennin sjálf hafa myndað húsráð sem heldur uppi starfinu með kvöldopnun, uppákomum, fræðslu fyrir ungmenni og farið í skemmtiferðir ofl. til að þjappa þessum aldurshóp saman.  

Hátíðahöld verða að bíða því nú eru svo mörg ungmenni í stjórn hússins stödd í útskriftarferð á sólarströndu en klárlega verður afmælinu fagnað seinna í sumar eða  haust. 

 

Til hamingju ungmenni í Mími með mikilvægt starf ykkar í ungmennahúsinu.

ij

 

meira...
18. febrúar 2010 11:49

Söngkeppni MB og Mímis.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

meira...
18. febrúar 2010 11:34

Bláa Lóns ferð Mímis.

Ungmennahúsið Mímir bauð uppá að hópferð í bláa lónið 5. Febrúar síðastliðin. :) það fóru um 25 ungmenni á rútu frá Sæmundi fljótlega eftir skóla og vorum komin í Bláa Lónið um klukkan 17:00, þar vorum við í góðan tíma og höfðum það mjög gott. Úr bláa lóninu var síðan haldið áleiðis heim með viðkomu á matsölustað til að seðja hungrið..

 

Ferðin heppnaðist með eindæmum vel og þótti afar skemmtileg, og hver veit nema við gerum eitthvað svona aftur :) !

 

Hér fyrir neðan fylgir hópmynd af hópnum í bláa lóninu,

 

 

meira...
8. janúar 2010 12:49

Gleðilegt nýtt Mímis-ár.

Stjórn Mímis óskar öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir flott ár sem núna er lokið.

 

Síðasta ár var viðburðaríkt hjá Mími. Það sem stendur uppúr er náttúrulega flutningur yfir í nýja aðstöðu og uppbygging starfsins í nýrri aðstöðu.

 

En við erum ekki hætt og er stefnan á að standa fyrir frábæru starfi á árinu. Það er mikið framundan.  

 

Til að byrja með þá má taka það fram að Mímir hefur opnað aftur eftir jólafrí og er opið á venjulegum tímum.

 

Á planinu hjá Mími er að fara í ferð og gera eitthvað skemmtilegt.

 

Til að byrja með má nefna að Mímir og Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar ætla í sameiningu að standa fyrir söngkeppni í endan Febrúar. Og var ákveðið að gera mikið úr þessari keppni og hafa hana mjög stóra í ár, meðal annars á að setja saman hljómsveit sem spilar undir hjá öllum keppendum. Skráning er nú þegar hafin hjá stjórnunum, og lýkur henni 22. Janúar. Einnig er hægt að skrá sig í tölvupósti á NMB@menntaborg.is og ung.mimir@gmail.com. Keppnin er einnig undankeppni fyrir hina stóru Söngkeppni Framhaldsskólanna.

 

Auk þess er marg skemmtilegt framundan, t.d. stórt fifa-mót og stelpukvöld.

 

Auk þess verðum við með hina ýmsu viðburði á breiðtjaldi framundan, svo sem Em í handbolta þar sem Íslenska landsliðið keppir, þá styttist í 16 liða úrslit í Meistaradeildinni auk þess sem það styttist óðum í stjörnuleikinn í NBA deildinni sem að öllum líkindum verður sýndur í Mími.

 

Það má því með sanni segja að það sé margt að gerast í Mími þessa dagana. Við skorum á alla að mæta í Mími á kvöldin og taka þátt í starfinu.

 

Þessi síða á svo að vera virk og ætlum við að auglýsa atburði framundan hér auk þess sem við ætlum að setja inn myndir og fréttir úr starfinu.. :)

 

Þáerum við alltaf opin fyrir hugmyndum um eitthvað að gera.

 

 

 

 

 

 

 

Að lokum má benda það að við erum með Facebook og endilega Addið okkur þar ;)

 

 

 

 

 

 

meira...
4. desember 2009 03:53

Með í jólaútvarpi Óðals

Stjórn ungmennahúss og stjórn nemendafélags menntaskólans verða með þætti og segja frá starfi sínu í ungmennahúsi og félagslífi skólans í jólaútvarpi unglinga í Óðali og verður gaman að fylgjast með þeim þáttum að vanda.

 

Þættir þessir verða í beinni útsendingu fimmtudagskvöldið 10. des. frá kl. 20.00 - 23.00  - Fm. Óðal 101.3 

 

 

meira...
19. nóvember 2009 11:07

Ný stjórn í Mími

Á aðalfundi húsráðs í gær var kosin ný stjórn í húsráðið. Stjórnina skipa nú:

 

Formaður: Hugrún Hildur
Gjaldkeri: Ingi Gunnar Kristbergsson
Ritari: Þórdís Sif Arnarsdóttir
Meðstjórnandi: Jóhann Snæbjörn
Skemmtanastjóri: Óli Þór

 

Við óskum nýrri stjórn alls besta í störfum sínum í vetur en mikið reynir á hana þar sem fjarmagn til starfsins hefur verið minnkað og mikið mæðir nú á sjálfboðaliðum eins og víða í frítímastarfi á tímum samdráttar.

Við viljum hvetja öll ungmenni á aldrinum 16-25 ára til að mæta í kvöldstarfið í ungmennahúsinu hvort sem þau eru á vinnumarkaði, í skóla hér, Akranesi eða eru atvinnuleytendur. Stöndum saman í vetur og tökum þátt í jákvæðu starfi.

Fráfarandi stjórn eru þökkuð góð og óeigingjörn störf á síðasta starfsári hennar.

Mætum í Mími !

Stjórnin

 

 

meira...
18. nóvember 2009 06:10

Aðalfundur húsráðs Mímis ungmennahúss í kvöld miðvikudagskvöld

Venjuleg aðalfundarstörf.

Kosið í nýja stjórn sem leiðir starfið næsta árið ásamt því að bera ábyrgð á gæslu og innra starfi í húsinu á opnunartíma þess.

Mætum öll og tryggjum að ungmennahúsið okkar lifi áfram.

Stjórnin. 

meira...
25. september 2009 12:41

Opnunarhátíð þriðjudag 29. sept kl. 20.00

25. september 2009

Mímir ungmennahús opnar í MB

Síðustu tvær vikur hafa ungmenni í Mími ásamt ungmennum í Nemendafélagi MB unnið sameiginlega að flutningi ungmennahússins frá Kveldúlfsgötu 2b yfir götuna í frábæra aðstöðu sem er á neðri hæð menntaskólans.

Verður þetta vonandi framtíðar ungmennahús sveitarfélagsins ásamt því að þar fer fram starfsemi nemendafélags menntaskólans.

Undirbúningur hefur gengið vel og samstarf stjórna með miklum ágætum. Einnig hefur ungmennaráð sveitarfélagsins komið að hugmyndavinnu. Áætlað er að á skólatíma hafi nemendur menntaskólans aðstöðuna en á kvöldin þá verði þetta ungmennahús fyrir öll ungmenni í sveitarfélaginu á aldrinum 16 - 25 ára og þá sjái húsráð ungmennahúss um starfið sem fram fer.

 

Opnunarhátíð verður haldin í nýja ungmennahúsinu þriðjudaginn 29. sept. n.k. kl. 20.00 og verður þá nýja aðstaðan vígð með viðhöfn og eru allir hjartanlega velkomnir.  Flutt verða ávörp í tilefni dagsins og opnuð ljósmyndasýning Rakelar Ernu Skarphéðinsdóttur á listavegg ungmennahússins.  

Öll ungmenni velkomin ásamt foreldrum og öðrum þeim sem vilja koma og gleðjast með ungmennum okkar að þessu tilefni. Gríðarlega margir möguleikar til félagsstarfs ungmenna eru þarna að opnast ekki síst vegna samstarfs og tengingar við menningarsalinn uppi vegna stærri uppákoma.

 

Ungmenni í Borgarbyggð til hamingju með nýju aðstöðuna, nú er það ykkar að sjá til þess að innra starfið blómstri og verði enn öflugra en áður.

ij.    

 

meira...

 

Þriðjudagskvöld frá kl. 20.oo - 23.oo

 

Miðvikudagskvöld frá kl. 20.oo - 23.oo

 

Fimmtudagskvöld frá kl. 20.00 - 23.00

 

Allir á aldrinum 16 - 25 ára eru velkomnir í heimsókn !