Stjórn Mímis óskar öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir flott ár sem núna er lokið.
Síðasta ár var viðburðaríkt hjá Mími. Það sem stendur uppúr er náttúrulega flutningur yfir í nýja aðstöðu og uppbygging starfsins í nýrri aðstöðu.
En við erum ekki hætt og er stefnan á að standa fyrir frábæru starfi á árinu. Það er mikið framundan.
Til að byrja með þá má taka það fram að Mímir hefur opnað aftur eftir jólafrí og er opið á venjulegum tímum.
Á planinu hjá Mími er að fara í ferð og gera eitthvað skemmtilegt.
Til að byrja með má nefna að Mímir og Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar ætla í sameiningu að standa fyrir söngkeppni í endan Febrúar. Og var ákveðið að gera mikið úr þessari keppni og hafa hana mjög stóra í ár, meðal annars á að setja saman hljómsveit sem spilar undir hjá öllum keppendum. Skráning er nú þegar hafin hjá stjórnunum, og lýkur henni 22. Janúar. Einnig er hægt að skrá sig í tölvupósti á NMB@menntaborg.is og ung.mimir@gmail.com. Keppnin er einnig undankeppni fyrir hina stóru Söngkeppni Framhaldsskólanna.
Auk þess er marg skemmtilegt framundan, t.d. stórt fifa-mót og stelpukvöld.
Auk þess verðum við með hina ýmsu viðburði á breiðtjaldi framundan, svo sem Em í handbolta þar sem Íslenska landsliðið keppir, þá styttist í 16 liða úrslit í Meistaradeildinni auk þess sem það styttist óðum í stjörnuleikinn í NBA deildinni sem að öllum líkindum verður sýndur í Mími.
Það má því með sanni segja að það sé margt að gerast í Mími þessa dagana. Við skorum á alla að mæta í Mími á kvöldin og taka þátt í starfinu.
Þessi síða á svo að vera virk og ætlum við að auglýsa atburði framundan hér auk þess sem við ætlum að setja inn myndir og fréttir úr starfinu.. :)
Þáerum við alltaf opin fyrir hugmyndum um eitthvað að gera.
Að lokum má benda það að við erum með Facebook og endilega Addið okkur þar ;)